Monday, June 23, 2008

FACEBOOK !

Hæ. Eitt orð: facebook!
er á facebook undir mínu fulla nafni :-)

Saturday, May 10, 2008

Prófin búin !!!!

Hæ aftur :o)

Loks búin í prófum jibbííííí !!!!!


Held áfram að leika mér í forritum, kíkið á þetta:



Hér er ég sem (50%) api...



sæt...? ;-) Soldið creepy líka samt :-D

Sé ykkur soon,

kv. Anna.

Monday, March 31, 2008

Enn hér...

Hæ enn hér, að gera myndbönd og reyna að læra ;-) Er líka búin að uppgötva Jane Austen og á núna flestallar nýjustu myndirnar eftir sögunum hennar... Já maður getur verið manískur stundum, en það er bara hollt... ekki satt... En jæja best að koma sér í háttinn, gjörsamlega búin að snúna sólarhringnum við og eins gott að laga það þegar maður þarf að byrja prófundirbúninginn og kennarar setja fyrir brjáluð verkefnaskil alveg fram að prófum... :-o
Sí ja,
Anna.

Thursday, February 21, 2008

HALLÓ :-)

Enn eitt myndbandið, gert í fullkomnara forriti og ég er þó ekki alveg búin að ná myndbandagerðar-tækninni fullkomlega... það kemur! Endilega commentið á myndböndin, hvort sem er hér eða á YouTube!



Annars er mest lítið í fréttum, fór í vísindaferð til CCP (Eve-online) á föstudaginn fyrir viku og það var svakalega gaman. Stefni ótrauð á tölvuleikjageirann ;-) Búin að vera að fikta í allskonar teikni- og 3-D forritum, fæ ekki nóg af þessu dútli :-D

Meira seinna!
kv. Anna

Thursday, February 14, 2008

Hæ aftur!

Ég er alveg að missa mig í þessum Moonlight þáttum, hérna kemur annað myndbandið mitt af YouTube :-)

Tuesday, February 12, 2008

HÆ !

Sælt veri fólkið! Hvar eru allir?
Ég er ekki búin að vera dugleg að læra undanfarið, heldur hef ég eytt mestöllum tíma mínum í að horfa á geggjaða þætti, Moonlight. Gerði meira að segja fyrsta 'love' myndbandið mitt á YouTube úr þáttunum!
Hérna er það:

Og þar sem aðalleikarinn minnir mig svo hrikalega á John Corbett ákvað ég að blanda þeim saman, þetta er útkoman:

Allavega vildi bara láta vita að ég væri enn með lífsmarki og endilega skiljið eftir comment næst þegar þið ratið hingað.

kv. wannabe nördinn...

Wednesday, January 16, 2008

Hollywood tvífarinn minn er Mischa Barton ;-)

Hver er þetta?:


Ég eða Mischa?
Þetta er 50% ég og 50% hún. Lítum við ekki nokkuð vel út saman? :-)

Ok hún er ekki í uppáhaldi hjá mér en niðurstöðurnar tala sínu máli, við gætum verið systur... eða þannig... mér finnst við ekkert líkar... En eftir um 10 mismunandi samanburði þá var útkoman sú að ég líkist mest:
1. Mischa Barton
2. Katherine Heigl
3.-6. Tara Reid, Tiffany Amber-Thiessen, Charlize Theron og Katie Couric!

Hérna eru smá mynddæmi:



Þessir samanburðir eru mjög skemmtilegir og hægt að framkvæma þá á síðunni http://www.myheritage.com/FP/Company/tryFaceRecognition.php
en hún hefur nú legið niðri síðustu daga þegar ég reyndi að opna hana, vonandi lagast það fljótt:-D

Eigið góðan dag;-)
kv. gú-Nörd...

Wednesday, January 2, 2008

Gleðilegt nýtt ár :-D

Takk fyrir þau liðnu!
kv. gú-Nördinn (einkunnirnar voru ok!)