Sunday, December 23, 2007

Gleðilega hátíð :-)

Hæ,
óska öllum gleðilegra jóla ;-)

Gærdagurinn fór allur í gæsun á Berglindi vinkonu og það sem hún lét hafa sig út í stelpan! Labbandi um Kringluna kjaftfulla af fólki í léttgeggjuðum fötum og takandi myndir af þeim með sér og syngjandi með jólasveinum! Svona á þetta að vera. Greinilegt að ástin eykur sjálfstraustið ;-) Sem er að sjálfsögðu frábært! Svo var hún send í nudd og pott í Baðhúsinu og um kvöldið fórum við á Caruso og borðuðum alltof mikið...

En maður er allavega loks kominn í jólafrí og ég er strax farin að glugga í Harry Potter hehe!
Svo er það lokaundirbúningur fyrir brúðkaupið og mæting þann 29. des. um hádegi lengst úti á landi... vonandi að veðrið hemji sig!

En meira síðar. Hafið það gott og gleðjið aðra :-)

kv. Anna.

Tuesday, December 18, 2007

Three down, one to go...!

Hæ,
hvernig fer jólastressið með mann núna?
Það er svo sem ágætt að vera fátækur nemandi í foreldrahúsum á prófatíma, þegar allir aðrir eru á hlaupum að undirbúa jólin...
Eða þannig, ég gef mínar fáu gjafir og sendi mín fáu kort og ber svo út til þeirra sem búa í nágrenninu á Þorláksmessu, þannig er það yfirleitt og ekki kvarta ég (eða hinir yfir mér) ;-)

En nú eru þrjú próf búin, það þriðja var í dag og það síðasta strax á fimmtudag.
Ég er nú bara búin að dröslast gegnum þau hingað til, enda bjóst ég ekki við neinum ofstækiseinkunnum í svona gjörólíku námi frá því sem ég þekki, og er ég ekki prófamanneskja, eins og þeir sem þekkja mig vita þá er ég á móti prófum, úrelt og árangurslaus kennsluaðferð og hana nú! Símat, símat, símat segi ég! En hverju ræð ég...

Jæja og sprautufarið horfið og pínkuponsu mar eftir sem ekki er segjandi frá, nema þá bara til að minna á að það eru þrjár vikur síðan... En allavega er ég heilbrigð (þrátt fyrir kvef) og plús það að ég er loks komin með augndropa (eða gervitár) til að mýkja sáru augun mín sem hafa þjáðst í mörg ár vegna hvarmabólgu (og linsunotkun því ekki gengið augljóslega).

Svo hvort sem ég fæ einkunnir (ljótar eða sætar) fyrir jól þá verð ég í stuði! Plús það að ég er að fara að gæsa Berglindi vinkonu á laugardaginn (það verður bara dekur held ég...), hún er að fara að gifta sig þann 29. des! Svo það verður nóg um að vera í jólafríinu.

Utan við jól og brúðkaup ætla ég svo að halda áfram með Harry Potter lesturinn!

Ok verið góð við alla, líka ykkur sjálf :-)
kv. Gú-Nördinn (wannabe..) ;-)

Wednesday, December 5, 2007

Mar um mar frá....

Sæl verið þið.
Ég ennþá með rosa flott mar eftir blóð'gjöfina' í síðustu viku... Það er komin nákvæmlega vika... að hugsa sér. Svona getur þetta verið.

Annars er mest lítið að frétta. Er bara á fullu að klára kennsludagana í skólanum og svo byrja prófin í næstu viku. Soldið geggjað, kennslu lýkur á föstudaginn og fyrsta prófið er á þriðjudaginn!
En ojæja ekki dugir að kvarta eða kveina (ekki einu sinni þótt maður sé marinn... hehe...).

Það var eitthvað meira sem ég ætlaði að segja en ég man það ekki núna og þarf að koma mér í tíma.

Svo 'later!,

kv. marði nördinn ;-)