Thursday, November 29, 2007

Að vera eða ekki vera... toppurinn

Jæja nú er toppurinn alveg út og suður og gerir það sem hann vill... En ég reyni að láta hann ekki komast upp með það... :-o (Oh mig vantar smileys hérna... verð að redda því).

En já ég fór á jólahlaðborðið hjá Orkuveitunni síðustu helgi, tók Elsu vinkonu með mér. Það var rosa flott eins og alltaf hjá þeim. Forréttur (brauð, síld, lax o.fl.!), aðalréttur (heitar steikur og hangikét) og eftirréttur (ávextir, ís og búðingur)... Svo drakk maður malt og appelsín með! Alveg búinn eftir þetta maður gat ekki borðað daginn eftir... En þetta var svaka gaman, Karl Ágúst úr spaugstofunni sá um stuðið :-D

Allavega ég fór í svaka skemmtilega heimsókn á spítalann í gær, þ.e. sem sjúklingur (innan gæsalappa). Fór að hitta Ólaf lækni sem sér um að reyna að halda kalkinu í okkur systkinunum í eðlilegu magni.
FRAMHALDIÐ ER EKKI FYRIR VIÐKVÆMA :-D
Nema hvað að ég fór náttúrulega að láta draga úr mér blóð (eins og læknirinn segir) eins og oft áður til að tékka hvernig lyfið (þ.e. virka D-vítamínið never mind) virkar. Og blóðdragarinn var held ég að flýta sér, stungan var ekki með því versta en í hvert sinn sem skipt var um hylki þá fór nálin lengra inn... og er ég MARIN á æðinni...
VIÐKVÆMNI LOKIÐ :-)
Gat varla hreyft höndina án þess að kveinka mér einhverjum klukkutímum á eftir í gær. En þetta er svo sem ekki fyrsta blóðtakan mín svo ég ætti að vera þrautþjálfuð, en mér finnst þetta alltaf óþægilegt og er oft marin, en kannski ekki alveg eins og núna...

Allavega mikið er ég stolt af þér ef þú last gegnum 'viðkvæma' kaflann, en hann var náttúrulega ekkert ógeðslegur, blóðumræðan er alltaf skemmtileg...

En svo lét læknirinn mig líka panta tíma í heilaskönnun (í lok janúar), þar sem það getur gerst að heilinn kalki (þ.e. nokkurs konar rýrnun sem skerðir starfsemi heilans að einhverju leyti) í þeim sem hafa búið við kalkskort. Já það er sko ekkert grín að vera 'kalkaður' þótt það sé oft notað í örlítið óljósari merkingu í daglegu tali. Nú veit ég nákvæmlega hvað það merkir og ætla ekki að grínast með það meir. En vonandi er ég ekki að 'kalka' (en það myndi kannski skýra ýmislegt...).. ok ég get grínast með sjálfa mig en ekki aðra ;-)

Jæja þarf í tíma.
Munið að njóta hvers dags í botn (eða þar um bil) :-)

kv. kalkaði nördinn (gæti orðið næsta myndasöguhetja?)
Anna :-)

1 comment:

Anonymous said...

Já, vonandi að þú sért ekki að kalka kæra systir! Ég með mitt nasistablóð hef verið heppin að fá ekki þennan leiðinda sjúkdóm.
kveð að sinni!
Hilda "SS" Eichmann muuahahaha