Wednesday, October 31, 2007

Jæja jæja

Tveir búnir að commenta... hvar eru allir hinir?...

Allavega það varð úr að við rændum Margreti systur og krökkunum til okkar síðustu helgi og spiluðum keilu á laugardeginum, áttum salinn út af fyrir okkur!! Og borguðum alltof lítið en kannski var afgreiðslumaðurinn með aðra verðskrá en síðast... Hugrún litla svaf heima á meðan, á sama tíma og afi hennar horfði á fótboltaleik (það var auðvitað ástæðan fyrir því að hann fór ekki í keilu...)!

Úrslitin voru í stuttu máli þannig að allir unnu! hehe... (Hæstu stigin voru hjá ömmunni og moi... en það er ekkert að marka ég er með mestu reynsluna og þess vegna hefði ég átt að rústa þessu... en það var nú ekki svo, hin voru öll mjög efnileg ;-))

En svo er næst á dagskrá að taka mig á í forrituninni maður, alveg að gera mig hrukkótta... en samt mjög skemmtileg, bara erfitt að vera svona SLOW þegar maður þarf að læra hlutina á skömmum tíma... Var að skila hangman-verkefni um daginn. Ef ég næ einhvern tímann að klára leikinn getið þið kannski fengið að spila hann á netinu.... :-)

Ennfremur er á dagskránni að kíkja kannski á tónleika á morgun, hátónsbarkakeppnina landsfrægu á Skaganum. Og þar að auki er ég að fara á hina heimsfrægu keppni Ofurnördinn 2007 á föstudaginn... sem er keppni milli nördanna í HÍ og HR. Ætla kannski að taka þátt í vélritun (og jafnvel að skrá mig sem varamann í Singstar), sjáum til. Það verður allavega svaka fjör... vonandi vinnum við heheh :-D

Gef skýrslu um það síðar.

En núna er ég í eyðu og ætla að reikna nokkur dæmi fyrir tímann sem byrjar eftir klukkutíma. Var í prófi áðan og gat nú bara um það bil helminginn... alltof mörg dæmi fyrir 1 klukkutíma... svo maður krossar bara fingur :-)

Sí U l8er,
eigið góðan dag í rokinu ;-)

Annsa Gödrún (Gú-nörd hehe)

Tuesday, October 23, 2007

Var mín sárt saknað...?

Spyr bloggið, ekki ég...

En ég þakka fyrir að það er að minnsta kosti ein manneskja sem les bloggið mitt... þið hin verðið að taka ykkur á ef þið viljið að ég haldi þessu áfram... !!! ;-)

Ég hugsa þar sem ég er svo sjálfstæð og er í tölvunarfræði að ég fari að búa til heimasíðu fljótlega í stað svona staðlaðra bloggsíðna, þar sem verður hægt að nálgast myndirnar mínar beint og alls konar skáldskap og dútlerí, jafnvel teikningar. Fæ ég einhver viðbrögð við því?? :-)

En það er nú helst að frétta að ég er að drukkna í heimanámi og hef ekki einu sinni haft tíma til að byrja á lokaritgerðinni í sálfræði með Elsu vinkonu... við erum báðar svaka busy en ætlum okkur að skila snilldarritgerð næsta sumar!!

Svo er það nú það sorglega, að ég sem var búin að vera í svaka myndastuði og tók myndir í þremur síðustu afmælunum sem ég mætti í, að ég gleymdi að taka myndir í mínu eigin afmæli!!! Verður maður að ráða fagljósmyndara til að stundirnar skili sér á pappír...?? :-o

En allavega það var einn skemmtilegasti afmælisdagurinn minn frá upphafi held ég, við hittumst bara fjórar, ég, Elsa, Berglind og Gerða og borðuðum óhollt og fórum svo í keilu að brenna því! Og héldum svo áfram að borða óhollt og spjalla fram á kvöld... og spiluðum m.a.s. Da Vinci spilið bráðskemmtilega sem ég segi kannski betur frá síðar. En sem sagt engar myndir frá þessum frábæra degi, 29. september þegar ég hélt upp á tuttugasta og eitthvað afmælisdaginn...

En svo er það nú bara nýjast í fréttum að ég skellti mér á árshátíð á laugardaginn var, með mömmu og pabba hjá Orkuveitunni!! Og hef ég sögu að segja frá henni...

Þetta var geggjað stuð, gekk allt upp, maturinn og skemmtiatriðin og svo ekki síst tónlistin!

--Það var þarna frábær píanóleikari sem lék í að minnsta kosti klukkutíma alls fyrir okkur, en var aldrei nafngreindur!! Hvað átti það nú að þýða...
--svo var Gísli Einarsson veislustjóri og fór algjörlega á kostum, þræddi okkur í gegnum allar 'energy' sameiningarnar á landinu... skammstafað NEI og SEI SEI og GREI o.s.frv. (man ekki alveg hvað þær stóðu allar fyrir!!).
--Bjarni töframaður kom en er hættur að galdra og orðinn trúbador. Hann fór m.a. til Afríku og ætlaði að taka þátt fyrir þeirra hönd í Eurovision... en það gekk víst ekki... En við fengum að heyra afríska tónlist! Svo spilaði hann fyrir okkur með mikilli innlifun El Mariachi lagið hans Antonio Banderas úr Desperado... og síðast en ekki síst lékk hann fyrir okkur hið ofurrómantíska lag 'Wicked game' eftir Chris Isaak, eins og Arnold Schwarzenegger hefði samið það og flutt sjálfur... náði ríkisstjóranum gjörsamlega og húsið ætlaði að hrynja undan hlátrasköllunum...
--Simmi og Jói sömdu líka nýjan texta fyrir Orkuveituna við lagið fræga "í þeim gömlu kartöflugörðunum heima" sem nú fékk heitið "í þeirri gömlu Orkuveitunni heima"... Algjörir snillingar... vildi að ég ætti lagið hjá mér!
--en hápunkturinn var auðvitað 5 lög (að mig minnir) úr The George Michael Show, með þeim Friðriki Ómari og Jógvan. Þeir voru báðir komnir með alveg dökkt hár og Friðrik Ómar með strípur!! En það fór þeim svo sem ekki illa. Báðir einstaklega öruggir söngvarar og ég hef aldrei Friðrik Ómar syngja af svona miklum krafti, hann sló alveg í gegn og hélt fjörinu uppi á meðan á showinu stóð! En dansararnir voru nú fullýktir fyrir minn smekk, held að Y. Olsen hafi ef til vill átt þátt í því, var þannig stíll og ég fíla ekki hennar stíl... En að öðru leyti frábært show og ég væri algjörlega til í að sjá það í heild!!
--Svo spiluðu Paparnir fyrir dansi fram á nótt eins og þeim er einum lagið og við fórum kringum miðnætti, ég að sjálfsögðu bílstjórinn.
--Nú er ég búin að telja flest upp. Þegar ég man eitthvað meira gott set ég það inn!!

Sem sagt mikið gaman mikið fjör. Næst á dagskrá er svo að ræna Margreti systur og krökkunum til okkar og skella okkur öll saman í keilu hérna uppfrá (já ég er algjör keilusjúklingur), bróðir, systur og börn! Og allir hinir sem vilja með... Og einhver tímann fer maður í diskókeilu í Keiluhöllinni í RVK... heheh

En hafið það gott, meira fljótlega ;-)

kv. Annslan.