Hæ aftur,
engar athugasemdir? Er þetta svona fullkomlega orðað hjá mér um Harry Potter og allt hitt að enginn hefur neitt að segja um það? Hmm... Ég held þá bara áfram að tala við sjálfa mig... Myndi skrifa í venjulega dagbók í staðinn, ef ég skrifaði ekki svona hörmulega illa. Svo ég held bara áfram að skrifa hér, hvort sem einhver les þetta eður ei...
En já ég sem sagt á allar Harry Potter bækurnar núna og líka yngstu söguna hans Tolkiens, The Children of Húrin, sem sonur hans lauk við fyrir hann. Rosa flott bók með myndum og öllu. En ég hef ekki náð að lesa neitt í henni ennþá, það er svona þegar maður pantar bækur í sömu andrá og maður þarf að lesa fyrir próf. Ég náði samt að lesa fyrstu 3 Harry Potter bækurnar og byrja á þeirri fjórðu áður en lærdómurinn tók við. Veit svo sem ekki hvernig hann gengur, ekki of vel, en kannski ekki illa heldur. Nóg um það, kemur í ljóst þegar ég er búin í prófinu þann 20. og fæ einkunnina.
Svo býð ég líka eftir að fá endanlega stundaskrá í tölvunarfræðinni, drögin að henni líta nebla ekki beint vel út... Byrja kl. 8 alla morgna, og stundum RIISA eyða yfir daginn og síðasti tíminn nær að kvöldmatnum... No freaking way, please don't let it be like that... Ég hef ekkert á móti því að mæta í fleiri tíma en ég er vön, þegar þeir eru dæmatímar og svoleiðis, ef bara ég hef orku til þess. En ég sé ekki að verði neitt sérstaklega happy og orkusöm eftir að hafa vakað í TÓLF klukkutíma, því ég þarf að vakna kl. 6 til að ná strætó kl 6.40 til að komast í tíma kl. 8.20 ! Jebb call me lucky... EN kannski fæ ég frítt í strætó, þá lagast þetta aðeins. Þeir eru að spá í að gera strætóinn frían héðan frá Akranesi. Þá myndi það spara mér 30 þús kallinn ef þeir gerðu það. En ég keyri alltaf sjálf í próf og svoleiðis, ekki í strætóstuði þá.
Jæja áfram með lærdóminn og hætta að raula (ég geri það endalaust þegar ég er fyrir framan tölvuna og ekki með músík á, radda reyndar stundum þegar músíkin er á) -ég get raulað og lært samtímis, en finnst ágætt að hvíla raddböndin samt á meðan ég kúri í bókunum...
Ok hafið það gott, heyrumst,
kv. Anna Gú.
Thursday, August 9, 2007
Subscribe to:
Posts (Atom)

