Wednesday, July 25, 2007

Harry Potter and the volcanic eruption

Já lélegur titill... Jæja jæja jæja... Hvaða afsökun getur maður mögulega komið með fyrir því að skrifa ekkert í heilan mánuð! Að maður hafi gleymt blogginu... nei ekki beint ... að maður hafi verið upptekinn... nei ekki alveg heldur... að maður hafi verið utan við sig og út úr heiminum? ... Að maður hafi ekki nennt að skrifa ... Kannski að það séu ekki nógu margir að lesa það! ... Ómögulegt að segja hver ástæðan er...

En allavega það hefur nú svo sem sitthvað gengið á. Búið að vera fjör í vinnunni auðvitað, eða þannig... eins mikið fjör og skrifstofuvinna gefur kost á. Írskir dagar voru fyrstu helgina í júlí og þá var auðvitað blíðskaparveður og bærinn allur í skrauti og við vorum með svaka grillveislu í götunni okkar, sem var auðvitað langbest skreytt í bænum! Margret systir og co úr Kefló voru með okkur í fjörinu og það eru komnar myndir inn á barnalandssíðuna þeirra (sjá Hugrún Erla hér í linkunum til hliðar). Og já hún Hugrún heillar að sjálfsögðu alla upp úr skónum, því hún er bæði hrekkjótt, fyndin og svo er hún farin að tala svo mikið! Geri aðrir betur fyrir 2ja ára afmælið (sem er í janúar)! Við 'amma' (mamma mín) höfum oft talað við hana í símann en hún bara 'hlustað' en um daginn svaraði hún okkur í fyrsta sinn og hafði margt að segja, hún segir aðallega hæ og svona eitt og eitt orð, en hún er að byrja að mynda setningar. Ég er að sjálfsögðu líka svo montin af því hún kann að segja nafnið mitt ;-)

Og já svo fórum ég og Elsa vinkona í afmæli til Gerðu vinkonu helgina á eftir og hún kann sko að bjóða manni í kaffi, það var heimabökuð kaka, heimabakað hvítlauksbrauð, heimagerður grautur m/ berjum og heimagerðar bollur með beikoni o.fl. Og svo fórum við auðvitað á Harry Potter á eftir! Góður dagur það, og sennilega 'enskasti' dagur sem ég hef upplifað! Það vantaði bara teið :-)

Ég tók mig svo til og pantaði allar Harry Potter bækurnar frá Amazon.co.uk (var ódýrast þar) og byrjaði að lesa um helgina. Er að verða búin með bók 2 -hvað er þetta maður hefur nú skyldum að gegna og þetta tekur allt sinn tíma að lesa! Svo pantaði ég síðustu og sjöundu bókina frá síðunni play.com (ódýrast þar), þeir eru með fría heimsendingu og ég hef pantað frá þeim Roswell og Angel þáttaraðir og fleira.

Svo á ég reyndar síðustu bókina í acrobat-skjali (lögleg útgáfa!) en hver nennir nú að lesa bækur í tölvunni hjá sér? Ég get lesið greinar fyrir námið sem ég glósa úr í tölvunni en ekki svona lengra afþreyingarefni, það er ekki gott fyrir augun.

Ok nú vitið þið allt um hvað ég hef verið að gera síðastliðinn mánuð. Bið að heilsa og vona að ég komist norður til að hitta ykkur sem eruð þar, eftir síðasta sálfræðiprófið mitt ever (þar til ég fer í framhaldsnám) sem er 20. ágúst. Svo tekur bara heilakreistandi tölvunarfræði við frá mánaðarmótum ágúst / september ! Ji hvað verður skrýtið að byrja í svoleiðis námi, ekki einu sinni viss um að ég nái að klára önnina, en það kemur í ljós ;-)

Og að lokum. -Nú er víst allt að fara að gjósa, ég legg til að það verði skrifuð bónusbók um Harry Potter ævintýrið, Harry Potter and the volcanic eruption. Já ég veit ég er glötuð.

Allir að brosa (þótt það fari að gjósa ;-o)
kv. Anna Gudd.

No comments: