Monday, June 25, 2007

Mallorca myndir :-)

Hæ aftur,
ekki búin að vera nógu dugleg að pikka hérna inn. En það er svo sem allt við það sama, vinna og skóli. Ja nema hvað ég skráði mig í frí frá skólanum þar til í ágúst... Smá breyting þar! Ætlaði að klára B.A. ritgerðina í sumar, en svo leist mér bara ekkert á efnisvalið hjá mér svo ég ákvað að fresta henni þar til næsta vor/sumar og ætla að gera hana með Elsu vinkonu í staðinn þá! Með aðeins öðrum efnistökum, segi nánar frá því þegar línurnar skýrast. En allavega eru nú komnar Mallorca-myndir á myndasíðuna mína! Sjá: http://picasaweb.google.com/annagsig/Mallorca2007
Góða skemmtun við yfirferðina og hvað annað sem þið kunnið að taka ykkur fyrir hendur. Heyrumst, kv. Anna Gudd:-)

Thursday, June 14, 2007

Daglegt líf á ný :-)

Jæja hæ hæ,
nú er allt að falla í eðlilegt horf eftir utanlandsferðina, er komin á fullt í vinnunni aftur. Svo gerðist það nú að afi dó á meðan við vorum úti, svo við komum bara beint úr sólinni í kistulagninguna í síðustu viku. Svo var jarðarförin á föstudaginn. Svo þótt við höfum ekki verið hjá honum undir lokin gátum við samt kvatt hann almennilega. Þótt hann hafi verið orðinn þreyttur og minnislítill undir lokin þá veit ég að hann er alveg eins og nýr núna, hinum megin hjá fólkinu sínu. Maður man hann bara heilbrigðan og glaðan, eins og hann var alla tíð. Margret systa og co komu ekki heim fyrr en núna aðfaranótt þriðjudagsins, svo þau misstu af jarðarförinni en presturinn las kveðju frá þeim. Við verðum svo öll dugleg að heimsækja ömmu og vera til staðar fyrir hana.

En annars er það bara vinnan og námið hjá mér. Margret og co. eru að fara í bústað um helgina til að slaka þar á í viku í viðbót, svo þau fá aldeilis gott frí. Ma og pa eru bæði í fríi núna en mamma fer svo að vinna hjá Orkustofnun eftir helgina, nýtt starf og mjög spennandi. Hún ætlar auðvitað að taka strætó í vinnuna eins og ég gerði í skólann í vetur! Maður sparar nú helling á því, fyrst hann gengur héðan frá Akranesi. En þið ættuð að sjá uppbygginguna hérna í bænum, þetta er bara að verða vinsælasta „úthverfið“ í borginni... Við erum komin með Krónuna og Bónus, BT, Subway og nú er Dominos á leiðinni líka! Svo erum við með svaka flott kaffihús, þar sem er líka upplýsingamiðstöð og strætóstoppistöðin fyrir Reykjavíkurstrætó. Allt að gerast! En enn er ekkert gistiheimili hérna, síðan það helsta hætti fyrir ekki löngu. Einhver að kippa því í liðinn!

Jæja meira síðar,
kveðjur úr 15 stigum (segir mælirinn hér...) og alskýjuðu...
Anna Gudd.