Hæ,
allir að fara á Josh Groban tónleika næst þegar tækifæri er til! Ég fór í gær, og jú þetta var dýrt en ég sé sko ekki eftir peningnum, þótt ekki hafi verið hægt að hrópa húrra fyrir sætunum..
Hann er alveg einstakur, og ótrúlega einlægur í bæði söng og tali. Og bara nokkuð góður húmoristi líka. "I see a lot of women out there... and a few men... You are obviously here because you love the woman sitting next to you very much..." Er þetta ekki snilld...
En það er ótrúlegt að fylgjast með honum syngjandi og spilandi þarna eins og ekkert sé auðveldara. Hann tók mikið af nýjum lögum, og svo auðvitað það frægasta You Raise me up, sem maður hefur nú heyrt alltof oft, en var auðvitað frábært að heyra það svona live. Reyndar heyrðist nú ekki mikið í Gospelkór Reykjavíkur, en þau voru samt landinu til sóma. Og svo sinfoníuhljómsveit Reykjavíkur, sem spilaði með allan tímann, þau voru alveg frábær. Fiðlustelpan Lucia og gítarkarlinn (sem ég náði ekki nafninu á) sem fylgja Groban um heiminn, eru þvílíkir snillingar. Og auðvitað líka píanistinn, bassaleikarinn og trommarinn, allir góðir. Og svo er hann náttúrulega undrabarn sjálfur hann Groban, spilar á píanó, trommur og áreiðanlega eitthvað meira og svo syngur hann svona óaðfinnanlega.
Ég mun aldrei gleyma hversu þægilegt var að sitja á þessum tónleikum og lifa sig inn í músíkina. Við mamma sátum þarna saman og erum held ég enn í tónlistarvímu eftir þetta. Bara eins og góð slökun í sannleika sagt. Var allt svo óþvingað og fyrirhafnarlaust, bara eins og ekkert gæti mögulega klikkað hjá Groban og félögum.
Hljóðið var líka mjög flott, ljósin og zoomið á veggskjánum, svo höllin á alveg skilið hrós fyrir það, en seint mun ég hrósa þeim fyrir sætin... En litlu skiptir það þegar maður er að hlusta á svona ljúfa tóna. Og krafturinn í honum, undirspilið var kannski stundum fullhávært, en hann yfirgnæfði hana alltaf, jafnvel í mýkstu tónunum. Sem sagt einstök upplifun, sem ég mæli með fyrir alla :-)
Jæja ætla að snúa mér aftur að vinnunni og vona að tónlistarvíman dragi ekki úr afköstum mínum... Ouuuuuu remember when it rained...
Heyrumst!
Wednesday, May 16, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


2 comments:
Hefði ekki verið að verra að vera þarna, hann sleppur ekki undan mér næst!!
Hæ sys!
Takk aftur fyrir pössunina svo ég kæmist á tónleikana! Geðegt stuð eins og sonur minn myndi segja!
Ógleymanlegt!
Hafið það sem best í útlandinu!
Kiss,kiss
Hilda
Post a Comment