Hæ hæ,
mikið er ég nú glöð yfir úrslitunum í Eurovision, eitt af uppáhaldslögunum mínum vann. Og það voru þrjú önnur lönd í topp 10 sem voru inni á mínum topplista; Ungverjaland, Rússland og Moldavía. Ég var engan veginn að skilja hvað Armenía var að gera þarna á toppnum, og ekki Grikkland heldur... En það er nú kannski bara af því ég er frá Vestur-Evrópu... Hehe... En í alvöru talað, nördinn ég fyllti inn á Evrópukort, úrslit þessarar 'keppni'. Það var nú reyndar sennilega aðeins meira varið í Austur-Evrópu lögin en þau frá Vestur-Evrópu, en pælið samt í því að efstu 15 sætin af 24 keppenum í úrslitunum, voru frá Austur-Evrópu... Held það mætti alveg skipta þessu á næsta ári, þetta er ekki eintómir nágrannadómar, en greinilega nógu mikið verið að taka nágrannana fram yfir gæði laganna (og Íslendingar eru nú lítið saklausari í því). Auk þess sem keppnin verður miklu skemmtilegri ef atkvæðagreiðslunni væri skipt í undanúrslitum, þannig að Vestur-Evrópa veldi uppáhaldslögin sín frá Vestur-Evrópu og Austur-Evrópa veldi uppáhaldslögin sín frá Austur-Evrópu. -Og svo væri haldin sameiginleg úrslitakeppni, þar sem væru jafnmörg lög frá Austur- og Vestur-Evrópu, og þar væru báðir hlutarnir að kjósa bara (vonandi) það lag sem þeim fyndist best, óháð staðsetningu! Svoldið þvælið! En skiljú? Þetta fyndist mér sniðugt.
En jæja best að reyna að snúa sér að veruleikanum á ný! Stjórnmálin maður... Það er nú lítill veruleiki þar, ég vildi stjórnarskipti... En langar bara ekkert að tala um það meir! Bið að heilsa, munið að kíkja af og til á myndasíðuna mína, reyni að bæta inn þar reglulega.
kveðja þar til næst,
verið góð :-)
Sunday, May 13, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


No comments:
Post a Comment