Monday, April 30, 2007

Eurovision !

Hæ aftur,
smá eurovision öppdeit hér (heh sá sem giskar rétt á hvað öppdeit þýðir fær verðlaun...)!

Nú er ég búin að hlusta á öll lögin oftar en einu sinni (þ.e. þau sem þola endurtekna hlustun!).

Og niðurstaðan er breytt frá því síðast og sú að uppúr standa 12 lög (gæti auðvitað breyst ennfrekar...) sem koma frá eftirfarandi löndum (í stafrófsröð!), feitletruð þau sem ég held mest upp á:
Austurríki
Bosnía
Finnland
Ísland
Makedónía
Malta
Moldavía
Noregur
Rússland
Serbía
Tékkland
Ungverjaland

Ok þar hafiði það, og þar að auki, eftirfarandi lönd hefðu getað komist á topplistann ef flutningur og fleira hefði verið betri:
Búlgaría,
Eistland,
Georgía,
Lettland,
Slóvenía,
Sviss (kommon, bara burt með textann, lagið er fínt).

Og þar hafið þið það líka!
Best að halda áfram með prófaundirbúninginn.

Kveðja þar til næst,
Anna Gudd.

1 comment:

Anonymous said...

öppdeit...Humm..ný uppfærsla??? Fæ ég verðlaun?

Annars bið ég bara að heilsa Anna mín:) Sé þig á morgun!!

kv. Berglind hoppari