Hæ aftur,
smá eurovision öppdeit hér (heh sá sem giskar rétt á hvað öppdeit þýðir fær verðlaun...)!
Nú er ég búin að hlusta á öll lögin oftar en einu sinni (þ.e. þau sem þola endurtekna hlustun!).
Og niðurstaðan er breytt frá því síðast og sú að uppúr standa 12 lög (gæti auðvitað breyst ennfrekar...) sem koma frá eftirfarandi löndum (í stafrófsröð!), feitletruð þau sem ég held mest upp á:
Austurríki
Bosnía
Finnland
Ísland
Makedónía
Malta
Moldavía
Noregur
Rússland
Serbía
Tékkland
Ungverjaland
Ok þar hafiði það, og þar að auki, eftirfarandi lönd hefðu getað komist á topplistann ef flutningur og fleira hefði verið betri:
Búlgaría,
Eistland,
Georgía,
Lettland,
Slóvenía,
Sviss (kommon, bara burt með textann, lagið er fínt).
Og þar hafið þið það líka!
Best að halda áfram með prófaundirbúninginn.
Kveðja þar til næst,
Anna Gudd.
Monday, April 30, 2007
Sunday, April 15, 2007
Tölvur...
Jæja sökum Blogger bilunar ætla ég nú loksins að klára allt það sem ég ætlaði að setja inn á meðan á henni stóð:
Og talandi um tölvur og TÍMA. Hvað er með það að tíminn hverfi þegar maður er í tölvu?? Ég vildi að verkefnin mín væru ekki svona tölvubundin (og ennfremur að ég skrifaði betur með hönd og penna...) svo mér fyndist dagurinn nýtast betur! En jæja best að reyna að gera eitthvað af viti… Hafið það lúxus gott og ekki brak í baki eða allt á hvolfi! Syngið með lóunni og kveðið burt snjóinn og kuldann!
Og svo er það bara að læra fyrir próf og halda áfram með B.A. stórvirkið...
Kveðjur þar til næst :-)

Vinna…
Frá byrjun apríl og að páskafríinu var ég á fullu að vinna í draumastarfinu innan gæsalappa, þegar ég fæ vel borgað fyrir að sitja fyrir framan tölvu og pikka inn í hana gögn sem ég hef ekki þurft að safna sjálf en flokkað sjálf... þá er það draumastarfið... Svona getur maður verið einfaldur... Ja hérna... Þegar ég skrifa þetta sýnist þetta sannarlega skemmtilegt starf... Sem það og er! Og kom af himnum ofan, þegar ég átti ekki krónu eftir... Fyrsta starfið sem ég sótti um á vinnumiðlun nú í vor og fékk það... Merkilegt hvað netið getur verið sniðugt. Og það sem meira er, þetta var alveg tímabundin verkefnavinna -búin fyrir páska! Akkúrat búin að safna peningum fyrir Mallorca í maí og get lært róleg fyrir prófið mitt og einbeitt mér betur að B.A. verkefninu.
En talandi um tölvur, er maður orðinn of háður netinu í dag? Því ég átti að hafa nettengda tölvu í vinnunni, en það var ekki búið að setja það upp í henni og þurfti einhvern tæknikall í það (kall já, hvar eru tæknikonurnar... ég er kannski ein af þeim en gat ekki reddað þessu!), og í staðinn fékk ég bara að nota notandanafn og lykilorð yfirmannsins til að komast inn á tölvuna... Svona er að vinna fyrir konur! Ætli yfirmaðurinn hefði leyft mér þetta ef hann væri karl...? Ekki svo viss um það... En maður veit jú aldrei fyrr en reynir á! Annars var þetta ljúft hjá mér á meðan ég var í vinnunni, því ég vaknaði bara, vann, mætti stutt í skólann og kannski borðaði einhver korn inn á milli ef ég mátti vera að... og fór svo heim að reyna að læra en í raun var þá dagurinn búinn...

Friday, April 13, 2007
Komin aftur!
...Eftir bilun í bloggernum, búin að vera að reyna að setja eitthvað inn í einhverjar vikur en ekkert virkað. En það er helst að frétta að það var brúðkaup í gær hjá Margreti systur og Arnari. Innilega til hamingju með það :-) Kominn tími til eftir ÞRJÚ börn! Sjá myndasíðuna til hliðar, eða beinan tengil hér: http://picasaweb.google.com/annagsig/BrKaupMargretarOgArnars1242007
Heyrumst fljótt!
Heyrumst fljótt!
Subscribe to:
Posts (Atom)