Thursday, March 1, 2007

Ég um mann frá manni til manns?

Jæja hæ aftur,
vá hvað tíminn líður hratt. Og maður gerir lítið af viti... Þykist vera að læra, en er í raun bara að horfa á Heroes og hlusta á Eurovision lögin erlendis frá í ár... (omg who's the nerd...) Mörg góð lög, en Ísland sker sig úr, svo við eigum kannski séns (það segjum við og vonum á hverju ári...). Hægt að skoða þau sem eru komin á YouTube (bara skrifa Eurovision 2007 í leitina!).

Er svo að afla mér upplýsinga um tolla og sendingarkostnað... og reyna að vera svaka viðskiptafræðileg... [í dragtinni með nett gleraugu á nefinu híhí] af því mig langar svo að kynna Ísland fyrir frábæru bolunum frá The Mountain. Allir sem vilja bol sendi mér línu... :-D Á svo bókað námskeið fyrir stofnendur fyrirtækja í lok mánaðarins... Fingers crossed...

En já svo á ég eins og áður sagði að vera að læra, því ég er að útskrifast í október. Er bara í einum áfanga núna sem er hrikalega strembinn og svo bara blessuðu lokaverkefninu... og ekki gengur það nú of vel... Plús eitt próf í sumar. Svo maður á ekki eftir að vinna mikið í sumar, bara einhver hlutastörf, sem vonandi fást. Verst að maður skuli ekki hafa haft tíma til að klára einhverjar af þessum ótalmörgu sögum sem eru í skrifum, og gefa þær út í bók eða jafnvel myndasögu... Og vera orðinn ríkur á þessu... Og nú er maður meira að segja hættur að tala í fyrstu persónu... En þetta er samt ennþá ég, held ég...

Allavega, best að reyna að lesa eitthvað og koma sér í háttinn. Meira hvað dagarnir fjúka... Sí jú! Bless þangað til næst ljúflingar :-)

No comments: