Sunday, March 18, 2007

Hæ aftur... já réttilega kalla ég þetta bloggtilraunir...

En hvernig er það! Þið sem eruð á MSN, af hverju commentið þið ekkert á röflið í mér hérna... Ég hélt að allir væru svo comment-glaðir... En jæja. Allavega nú er ég alveg að fara að starta vefversluninni minni, hún fékk hið frábæra nafn; bolisti.net... Yndislegt ekki satt? Ég vísa á síðuna til skýringar á því hvernig mér (og mömmu!) datt þetta í hug... Og endilega þegar lagerinn er klár, þá megið þið velja uppáhaldsbolinn ykkar þarna... Ég er núna að biðja alla sem ég þekki að skoða síðuna og jafnvel foreldrafyrirtækið (www.themountain.com) og láta mig vita hvernig þeim líst á síðuna og vörurnar! Svo endilega ekki láta ykkar eftir liggja!

Já og svo er maður búinn að hlusta á ÖLL, já ÖLL eurovision lögin í ár og dæma þau eftir fyrstu hlustun. Viljið þið vita meir? Ég ætla allavega að taka fram að 10 bestu lögin (í starfófsröð!) finnst mér vera frá:
Austurríki
Eistlandi
Finnlandi
Íslandi
Kýpur
Makedóníu
Möltu
Moldavíu
Rússlandi
Serbíu

Þar hafið þið það!
Og svona while I'm at it, skammar-eurovision-verðlaunin í ár frá mér fara til eftirfarandi landa:
Belgíu,
Bretlands,
Rúmeníu,
Úkraínu.

En jæja ég óska ykkur góðrar helgar og viku ef ég skyldi aftur ekki standa mig í umræðunni.

Verið góð við hvert annað... :-)

2 comments:

Anonymous said...

Hæ! Þú ert alltaf jafn mikill spekingur, búin að dæma Eurovision til hins ítrasta! hehe.. Gaman að sjá hvort niðurstaðan verði eitthvað svipuð!:) Vona annars að bolasalan eigi eftir að ganga vel, þetta er voða spennandi. Bið að lokum að heilsa öllum.

Anonymous said...

Hæ hæ! Ertu alveg á fullu í síðunni þinni? Engin tími fyrir smávegis hopp?

Vonandi heyri ég nú eitthvað í þér í vikunni. Hafðu það sem best snúll:)