...að skrifa smotterí hérna reglulega... 1x í viku kannski... Bara svona til að halda utan um það sem gerist í þessari ógnarstóru veröld á þessari eyju hérna í Karíbahafinu... Eða hvað það nú heitir aftur hafið okkar... Búin að dást of mikið af Pirates of the Caribbean. Þykist samt nokkuð viss um að myndirnar áttu ekki beint að gerast nálægt okkur... Fyrst maður á vini hér og þar er ekki úr vegi að láta fólk vita að maður sé við fulla heilsu (eða jafnframt ef svo er ekki, sem væntanlega sést strax á skrifunum). Ætla ekki að hafa þetta lengra núna. Þarf að skrifa ritgerð um postmodernískt sjónarhorn á sálgreiningu.
P.S. Ég veit alveg að við búum í Atlantshafinu, svona ef einhver hafði áhyggjur...
Thursday, February 15, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


No comments:
Post a Comment