Wednesday, February 21, 2007

Myndasíðan komin!

Kominn tengill hér til hliðar, á myndasíðuna mína. Þessar að neðan eru allar frá USA ferðinni í janúar.

Gleðilegan sprengidag ;-)

Jæja þá er vikan að verða liðin síðan síðast... Maður hefur bara verið að reyna að lesa og gera einhverja líflega tölfræðiútreikninga... Geggjað fjör... Gerðist svo ekki mikið um helgina, en fór í smá matarboð til ömmu, hún var að elda risa risa svínasteik sem hafði verið í frysti síðan í desember... Og því tími til kominn að kalla á liðið og fá aðstoð við 'átið'... Er að reyna að finna leið til að setja inn myndir gegnum þessa síðu, vonandi tekst það. Ágætt að geta skellt inn 'svipmyndum úr lífi námsmannsins...' öðru hverju... En jæja hef þetta ekki lengra, skrifa eitthvað skemmtilegt næst.
Þangað til, vonandi átuð þið mikið í gær og enn meira í dag, og flippið rækilega út á morgun :-D

Thursday, February 15, 2007

Jæja maður ætlar að reyna...

...að skrifa smotterí hérna reglulega... 1x í viku kannski... Bara svona til að halda utan um það sem gerist í þessari ógnarstóru veröld á þessari eyju hérna í Karíbahafinu... Eða hvað það nú heitir aftur hafið okkar... Búin að dást of mikið af Pirates of the Caribbean. Þykist samt nokkuð viss um að myndirnar áttu ekki beint að gerast nálægt okkur... Fyrst maður á vini hér og þar er ekki úr vegi að láta fólk vita að maður sé við fulla heilsu (eða jafnframt ef svo er ekki, sem væntanlega sést strax á skrifunum). Ætla ekki að hafa þetta lengra núna. Þarf að skrifa ritgerð um postmodernískt sjónarhorn á sálgreiningu.

P.S. Ég veit alveg að við búum í Atlantshafinu, svona ef einhver hafði áhyggjur...