Sunday, December 23, 2007
Gleðilega hátíð :-)
óska öllum gleðilegra jóla ;-)
Gærdagurinn fór allur í gæsun á Berglindi vinkonu og það sem hún lét hafa sig út í stelpan! Labbandi um Kringluna kjaftfulla af fólki í léttgeggjuðum fötum og takandi myndir af þeim með sér og syngjandi með jólasveinum! Svona á þetta að vera. Greinilegt að ástin eykur sjálfstraustið ;-) Sem er að sjálfsögðu frábært! Svo var hún send í nudd og pott í Baðhúsinu og um kvöldið fórum við á Caruso og borðuðum alltof mikið...
En maður er allavega loks kominn í jólafrí og ég er strax farin að glugga í Harry Potter hehe!
Svo er það lokaundirbúningur fyrir brúðkaupið og mæting þann 29. des. um hádegi lengst úti á landi... vonandi að veðrið hemji sig!
En meira síðar. Hafið það gott og gleðjið aðra :-)
kv. Anna.
Tuesday, December 18, 2007
Three down, one to go...!
hvernig fer jólastressið með mann núna?
Það er svo sem ágætt að vera fátækur nemandi í foreldrahúsum á prófatíma, þegar allir aðrir eru á hlaupum að undirbúa jólin...
Eða þannig, ég gef mínar fáu gjafir og sendi mín fáu kort og ber svo út til þeirra sem búa í nágrenninu á Þorláksmessu, þannig er það yfirleitt og ekki kvarta ég (eða hinir yfir mér) ;-)
En nú eru þrjú próf búin, það þriðja var í dag og það síðasta strax á fimmtudag.
Ég er nú bara búin að dröslast gegnum þau hingað til, enda bjóst ég ekki við neinum ofstækiseinkunnum í svona gjörólíku námi frá því sem ég þekki, og er ég ekki prófamanneskja, eins og þeir sem þekkja mig vita þá er ég á móti prófum, úrelt og árangurslaus kennsluaðferð og hana nú! Símat, símat, símat segi ég! En hverju ræð ég...
Jæja og sprautufarið horfið og pínkuponsu mar eftir sem ekki er segjandi frá, nema þá bara til að minna á að það eru þrjár vikur síðan... En allavega er ég heilbrigð (þrátt fyrir kvef) og plús það að ég er loks komin með augndropa (eða gervitár) til að mýkja sáru augun mín sem hafa þjáðst í mörg ár vegna hvarmabólgu (og linsunotkun því ekki gengið augljóslega).
Svo hvort sem ég fæ einkunnir (ljótar eða sætar) fyrir jól þá verð ég í stuði! Plús það að ég er að fara að gæsa Berglindi vinkonu á laugardaginn (það verður bara dekur held ég...), hún er að fara að gifta sig þann 29. des! Svo það verður nóg um að vera í jólafríinu.
Utan við jól og brúðkaup ætla ég svo að halda áfram með Harry Potter lesturinn!
Ok verið góð við alla, líka ykkur sjálf :-)
kv. Gú-Nördinn (wannabe..) ;-)
Wednesday, December 5, 2007
Mar um mar frá....
Ég ennþá með rosa flott mar eftir blóð'gjöfina' í síðustu viku... Það er komin nákvæmlega vika... að hugsa sér. Svona getur þetta verið.
Annars er mest lítið að frétta. Er bara á fullu að klára kennsludagana í skólanum og svo byrja prófin í næstu viku. Soldið geggjað, kennslu lýkur á föstudaginn og fyrsta prófið er á þriðjudaginn!
En ojæja ekki dugir að kvarta eða kveina (ekki einu sinni þótt maður sé marinn... hehe...).
Það var eitthvað meira sem ég ætlaði að segja en ég man það ekki núna og þarf að koma mér í tíma.
Svo 'later!,
kv. marði nördinn ;-)
Thursday, November 29, 2007
Að vera eða ekki vera... toppurinn
En já ég fór á jólahlaðborðið hjá Orkuveitunni síðustu helgi, tók Elsu vinkonu með mér. Það var rosa flott eins og alltaf hjá þeim. Forréttur (brauð, síld, lax o.fl.!), aðalréttur (heitar steikur og hangikét) og eftirréttur (ávextir, ís og búðingur)... Svo drakk maður malt og appelsín með! Alveg búinn eftir þetta maður gat ekki borðað daginn eftir... En þetta var svaka gaman, Karl Ágúst úr spaugstofunni sá um stuðið :-D
Allavega ég fór í svaka skemmtilega heimsókn á spítalann í gær, þ.e. sem sjúklingur (innan gæsalappa). Fór að hitta Ólaf lækni sem sér um að reyna að halda kalkinu í okkur systkinunum í eðlilegu magni.
FRAMHALDIÐ ER EKKI FYRIR VIÐKVÆMA :-D
Nema hvað að ég fór náttúrulega að láta draga úr mér blóð (eins og læknirinn segir) eins og oft áður til að tékka hvernig lyfið (þ.e. virka D-vítamínið never mind) virkar. Og blóðdragarinn var held ég að flýta sér, stungan var ekki með því versta en í hvert sinn sem skipt var um hylki þá fór nálin lengra inn... og er ég MARIN á æðinni...
VIÐKVÆMNI LOKIÐ :-)
Gat varla hreyft höndina án þess að kveinka mér einhverjum klukkutímum á eftir í gær. En þetta er svo sem ekki fyrsta blóðtakan mín svo ég ætti að vera þrautþjálfuð, en mér finnst þetta alltaf óþægilegt og er oft marin, en kannski ekki alveg eins og núna...
Allavega mikið er ég stolt af þér ef þú last gegnum 'viðkvæma' kaflann, en hann var náttúrulega ekkert ógeðslegur, blóðumræðan er alltaf skemmtileg...
En svo lét læknirinn mig líka panta tíma í heilaskönnun (í lok janúar), þar sem það getur gerst að heilinn kalki (þ.e. nokkurs konar rýrnun sem skerðir starfsemi heilans að einhverju leyti) í þeim sem hafa búið við kalkskort. Já það er sko ekkert grín að vera 'kalkaður' þótt það sé oft notað í örlítið óljósari merkingu í daglegu tali. Nú veit ég nákvæmlega hvað það merkir og ætla ekki að grínast með það meir. En vonandi er ég ekki að 'kalka' (en það myndi kannski skýra ýmislegt...).. ok ég get grínast með sjálfa mig en ekki aðra ;-)
Jæja þarf í tíma.
Munið að njóta hvers dags í botn (eða þar um bil) :-)
kv. kalkaði nördinn (gæti orðið næsta myndasöguhetja?)
Anna :-)
Wednesday, November 21, 2007
Ég er topp-manneskja :-)
Sé ykkur!
Njótið dagsins!
kv. topp-nördinn ;-) (hehehe...)
Monday, November 19, 2007
Still here...
You Are a Pegasus You are a perfectionist, with an eye for beauty. You know how to live a good life - and you rarely deviate from your good taste. While you aren't outgoing, you have excellent social skills. People both admire you - and feel very comfortable around you. 
Your Inner Muse is Urania You are most like this muse of astronomy. Your head is in the stars, and you look to the future. You give off a heavenly, mysterious vibe. And you're not too bad at predicting the future. 
Þetta er jákvætt...
Your Vibe Is Secretly Sexy Sexy isn't exactly a word you'd use to describe yourself But you have a quite allure that certain men feel appealing You don't need to flaunt your stuff to be sexier A little more confidence in yourself, and you'll really light up a room! 
En samt:
You Are Pretty Happy Being Single You have a full, fun life. And you definitely don't need love to be content. Of course, being single can get you down a little. Especially when you've been single for a while. But you know how to be patient and wait for the right person. You're life is too good to settle for anything! 
Að lokum:
You Are a Social Blogger! Your blog is more of a semi-private affair for your friends. It's how you keep in touch... sharing stories, jokes, and pics. 
Sjáumst:-)
Saturday, November 10, 2007
Ho ho ho...
En nei í titlinum var ég ekki að vísa í jólasveininn, heldur lagið hans Barða í Laugardagslögunum fyrir viku ;-) hehe... yndislegt lag, ekki hitt neinn sem ekki fílar súrrealismann í því...
En ég er svaka upptekin við að forrita núna svo ég ætla bara að setja inn nokkra gamansama tengla í þetta sinn, með nýgerðum uppgötvunum mínum um sjálfa mig... taramtatamm....
Jólin:
Your Christmas is Most Like: A Very Brady Christmas For you, it's all about sharing times with family. Even if you all get a bit cheesy at times. 
Frægu lokaorðin: Your Famous Last Words Will Be: "What we know is not much. What we don't know is enormous." Brottnumin?: There's a 36% Chance You've Been Abducted By Aliens Even though you have a few alien abduction signs, you're almost certainly in the clear. However, if aliens ever do come to your neck of the woods... they'll probably be coming for you! (þetta er nú ekki alveg rétt, ég var alltaf með blóðnös þegar ég var yngri, en þeir hafa látið mig vera eftir að ég fullorðnaðist, þá fór ég að verða of leiðinleg fyrir þá :-D) Fyrra líf…: In a Past Life... You Were: A Charming Beekeeper. Where You Lived: Portugal. How You Died: Suicide. 


Friday, November 2, 2007
Eina skemmtunin sem ég fæ í kvöld er forritun... ! :-O
Úúúúúúúúúúúúúú á HR...
við erum ekki sátt hérna í HÍ, vorum með liðin okkar svo gott sem fullskipuð fyrir Ofurnörd í kvöld en svo voru HR-ingar bara ekkert að standa sig, svo það þurfti að fresta viðburðinum... Come on... Hann verður þá eftir áramót, ég ætla að stinga upp á innbyrðis keppni ef HR-ingar klikka aftur...
En ég er ekki af baki dottin, farin að æfa mig vélritun og Singstar (eða karaoke) svo ég geti rústað þessu eftir áramót... hehe
En svo er ég að fara á fyrirlestur núna eftir hádegi, nánar tiltekið doktorsvörn í mannfræði um farsímavæðingu á litla Íslandi, fer með Elsu mannfræðinema. Það verður ábyggilega áhugavert. Hef farið á svona áður og það var fínt. Ætlum að skella okkur á kaffihús áður, veit ekki hvað er langt síðan við fórum síðast á kaffihús... Maður verður nú að standa sig í þessu, þótt maður búi ekki í borginni, ég tala nú ekki um fyrst að maður þarf ekki að sitja í reykháfi lengur...
Best að kíkja aðeins á forritunina áður en ég legg í hann...
Peace out people ;-)
Gú-Nörd.
Wednesday, October 31, 2007
Jæja jæja
Allavega það varð úr að við rændum Margreti systur og krökkunum til okkar síðustu helgi og spiluðum keilu á laugardeginum, áttum salinn út af fyrir okkur!! Og borguðum alltof lítið en kannski var afgreiðslumaðurinn með aðra verðskrá en síðast... Hugrún litla svaf heima á meðan, á sama tíma og afi hennar horfði á fótboltaleik (það var auðvitað ástæðan fyrir því að hann fór ekki í keilu...)!
Úrslitin voru í stuttu máli þannig að allir unnu! hehe... (Hæstu stigin voru hjá ömmunni og moi... en það er ekkert að marka ég er með mestu reynsluna og þess vegna hefði ég átt að rústa þessu... en það var nú ekki svo, hin voru öll mjög efnileg ;-))
En svo er næst á dagskrá að taka mig á í forrituninni maður, alveg að gera mig hrukkótta... en samt mjög skemmtileg, bara erfitt að vera svona SLOW þegar maður þarf að læra hlutina á skömmum tíma... Var að skila hangman-verkefni um daginn. Ef ég næ einhvern tímann að klára leikinn getið þið kannski fengið að spila hann á netinu.... :-)
Ennfremur er á dagskránni að kíkja kannski á tónleika á morgun, hátónsbarkakeppnina landsfrægu á Skaganum. Og þar að auki er ég að fara á hina heimsfrægu keppni Ofurnördinn 2007 á föstudaginn... sem er keppni milli nördanna í HÍ og HR. Ætla kannski að taka þátt í vélritun (og jafnvel að skrá mig sem varamann í Singstar), sjáum til. Það verður allavega svaka fjör... vonandi vinnum við heheh :-D
Gef skýrslu um það síðar.
En núna er ég í eyðu og ætla að reikna nokkur dæmi fyrir tímann sem byrjar eftir klukkutíma. Var í prófi áðan og gat nú bara um það bil helminginn... alltof mörg dæmi fyrir 1 klukkutíma... svo maður krossar bara fingur :-)
Sí U l8er,
eigið góðan dag í rokinu ;-)
Annsa Gödrún (Gú-nörd hehe)
Tuesday, October 23, 2007
Var mín sárt saknað...?
En ég þakka fyrir að það er að minnsta kosti ein manneskja sem les bloggið mitt... þið hin verðið að taka ykkur á ef þið viljið að ég haldi þessu áfram... !!! ;-)
Ég hugsa þar sem ég er svo sjálfstæð og er í tölvunarfræði að ég fari að búa til heimasíðu fljótlega í stað svona staðlaðra bloggsíðna, þar sem verður hægt að nálgast myndirnar mínar beint og alls konar skáldskap og dútlerí, jafnvel teikningar. Fæ ég einhver viðbrögð við því?? :-)
En það er nú helst að frétta að ég er að drukkna í heimanámi og hef ekki einu sinni haft tíma til að byrja á lokaritgerðinni í sálfræði með Elsu vinkonu... við erum báðar svaka busy en ætlum okkur að skila snilldarritgerð næsta sumar!!
Svo er það nú það sorglega, að ég sem var búin að vera í svaka myndastuði og tók myndir í þremur síðustu afmælunum sem ég mætti í, að ég gleymdi að taka myndir í mínu eigin afmæli!!! Verður maður að ráða fagljósmyndara til að stundirnar skili sér á pappír...?? :-o
En allavega það var einn skemmtilegasti afmælisdagurinn minn frá upphafi held ég, við hittumst bara fjórar, ég, Elsa, Berglind og Gerða og borðuðum óhollt og fórum svo í keilu að brenna því! Og héldum svo áfram að borða óhollt og spjalla fram á kvöld... og spiluðum m.a.s. Da Vinci spilið bráðskemmtilega sem ég segi kannski betur frá síðar. En sem sagt engar myndir frá þessum frábæra degi, 29. september þegar ég hélt upp á tuttugasta og eitthvað afmælisdaginn...
En svo er það nú bara nýjast í fréttum að ég skellti mér á árshátíð á laugardaginn var, með mömmu og pabba hjá Orkuveitunni!! Og hef ég sögu að segja frá henni...
Þetta var geggjað stuð, gekk allt upp, maturinn og skemmtiatriðin og svo ekki síst tónlistin!
--Það var þarna frábær píanóleikari sem lék í að minnsta kosti klukkutíma alls fyrir okkur, en var aldrei nafngreindur!! Hvað átti það nú að þýða...
--svo var Gísli Einarsson veislustjóri og fór algjörlega á kostum, þræddi okkur í gegnum allar 'energy' sameiningarnar á landinu... skammstafað NEI og SEI SEI og GREI o.s.frv. (man ekki alveg hvað þær stóðu allar fyrir!!).
--Bjarni töframaður kom en er hættur að galdra og orðinn trúbador. Hann fór m.a. til Afríku og ætlaði að taka þátt fyrir þeirra hönd í Eurovision... en það gekk víst ekki... En við fengum að heyra afríska tónlist! Svo spilaði hann fyrir okkur með mikilli innlifun El Mariachi lagið hans Antonio Banderas úr Desperado... og síðast en ekki síst lékk hann fyrir okkur hið ofurrómantíska lag 'Wicked game' eftir Chris Isaak, eins og Arnold Schwarzenegger hefði samið það og flutt sjálfur... náði ríkisstjóranum gjörsamlega og húsið ætlaði að hrynja undan hlátrasköllunum...
--Simmi og Jói sömdu líka nýjan texta fyrir Orkuveituna við lagið fræga "í þeim gömlu kartöflugörðunum heima" sem nú fékk heitið "í þeirri gömlu Orkuveitunni heima"... Algjörir snillingar... vildi að ég ætti lagið hjá mér!
--en hápunkturinn var auðvitað 5 lög (að mig minnir) úr The George Michael Show, með þeim Friðriki Ómari og Jógvan. Þeir voru báðir komnir með alveg dökkt hár og Friðrik Ómar með strípur!! En það fór þeim svo sem ekki illa. Báðir einstaklega öruggir söngvarar og ég hef aldrei Friðrik Ómar syngja af svona miklum krafti, hann sló alveg í gegn og hélt fjörinu uppi á meðan á showinu stóð! En dansararnir voru nú fullýktir fyrir minn smekk, held að Y. Olsen hafi ef til vill átt þátt í því, var þannig stíll og ég fíla ekki hennar stíl... En að öðru leyti frábært show og ég væri algjörlega til í að sjá það í heild!!
--Svo spiluðu Paparnir fyrir dansi fram á nótt eins og þeim er einum lagið og við fórum kringum miðnætti, ég að sjálfsögðu bílstjórinn.
--Nú er ég búin að telja flest upp. Þegar ég man eitthvað meira gott set ég það inn!!
Sem sagt mikið gaman mikið fjör. Næst á dagskrá er svo að ræna Margreti systur og krökkunum til okkar og skella okkur öll saman í keilu hérna uppfrá (já ég er algjör keilusjúklingur), bróðir, systur og börn! Og allir hinir sem vilja með... Og einhver tímann fer maður í diskókeilu í Keiluhöllinni í RVK... heheh
En hafið það gott, meira fljótlega ;-)
kv. Annslan.
Thursday, August 9, 2007
Læri lær...
engar athugasemdir? Er þetta svona fullkomlega orðað hjá mér um Harry Potter og allt hitt að enginn hefur neitt að segja um það? Hmm... Ég held þá bara áfram að tala við sjálfa mig... Myndi skrifa í venjulega dagbók í staðinn, ef ég skrifaði ekki svona hörmulega illa. Svo ég held bara áfram að skrifa hér, hvort sem einhver les þetta eður ei...
En já ég sem sagt á allar Harry Potter bækurnar núna og líka yngstu söguna hans Tolkiens, The Children of Húrin, sem sonur hans lauk við fyrir hann. Rosa flott bók með myndum og öllu. En ég hef ekki náð að lesa neitt í henni ennþá, það er svona þegar maður pantar bækur í sömu andrá og maður þarf að lesa fyrir próf. Ég náði samt að lesa fyrstu 3 Harry Potter bækurnar og byrja á þeirri fjórðu áður en lærdómurinn tók við. Veit svo sem ekki hvernig hann gengur, ekki of vel, en kannski ekki illa heldur. Nóg um það, kemur í ljóst þegar ég er búin í prófinu þann 20. og fæ einkunnina.
Svo býð ég líka eftir að fá endanlega stundaskrá í tölvunarfræðinni, drögin að henni líta nebla ekki beint vel út... Byrja kl. 8 alla morgna, og stundum RIISA eyða yfir daginn og síðasti tíminn nær að kvöldmatnum... No freaking way, please don't let it be like that... Ég hef ekkert á móti því að mæta í fleiri tíma en ég er vön, þegar þeir eru dæmatímar og svoleiðis, ef bara ég hef orku til þess. En ég sé ekki að verði neitt sérstaklega happy og orkusöm eftir að hafa vakað í TÓLF klukkutíma, því ég þarf að vakna kl. 6 til að ná strætó kl 6.40 til að komast í tíma kl. 8.20 ! Jebb call me lucky... EN kannski fæ ég frítt í strætó, þá lagast þetta aðeins. Þeir eru að spá í að gera strætóinn frían héðan frá Akranesi. Þá myndi það spara mér 30 þús kallinn ef þeir gerðu það. En ég keyri alltaf sjálf í próf og svoleiðis, ekki í strætóstuði þá.
Jæja áfram með lærdóminn og hætta að raula (ég geri það endalaust þegar ég er fyrir framan tölvuna og ekki með músík á, radda reyndar stundum þegar músíkin er á) -ég get raulað og lært samtímis, en finnst ágætt að hvíla raddböndin samt á meðan ég kúri í bókunum...
Ok hafið það gott, heyrumst,
kv. Anna Gú.
Wednesday, July 25, 2007
Harry Potter and the volcanic eruption
En allavega það hefur nú svo sem sitthvað gengið á. Búið að vera fjör í vinnunni auðvitað, eða þannig... eins mikið fjör og skrifstofuvinna gefur kost á. Írskir dagar voru fyrstu helgina í júlí og þá var auðvitað blíðskaparveður og bærinn allur í skrauti og við vorum með svaka grillveislu í götunni okkar, sem var auðvitað langbest skreytt í bænum! Margret systir og co úr Kefló voru með okkur í fjörinu og það eru komnar myndir inn á barnalandssíðuna þeirra (sjá Hugrún Erla hér í linkunum til hliðar). Og já hún Hugrún heillar að sjálfsögðu alla upp úr skónum, því hún er bæði hrekkjótt, fyndin og svo er hún farin að tala svo mikið! Geri aðrir betur fyrir 2ja ára afmælið (sem er í janúar)! Við 'amma' (mamma mín) höfum oft talað við hana í símann en hún bara 'hlustað' en um daginn svaraði hún okkur í fyrsta sinn og hafði margt að segja, hún segir aðallega hæ og svona eitt og eitt orð, en hún er að byrja að mynda setningar. Ég er að sjálfsögðu líka svo montin af því hún kann að segja nafnið mitt ;-)
Og já svo fórum ég og Elsa vinkona í afmæli til Gerðu vinkonu helgina á eftir og hún kann sko að bjóða manni í kaffi, það var heimabökuð kaka, heimabakað hvítlauksbrauð, heimagerður grautur m/ berjum og heimagerðar bollur með beikoni o.fl. Og svo fórum við auðvitað á Harry Potter á eftir! Góður dagur það, og sennilega 'enskasti' dagur sem ég hef upplifað! Það vantaði bara teið :-)
Ég tók mig svo til og pantaði allar Harry Potter bækurnar frá Amazon.co.uk (var ódýrast þar) og byrjaði að lesa um helgina. Er að verða búin með bók 2 -hvað er þetta maður hefur nú skyldum að gegna og þetta tekur allt sinn tíma að lesa! Svo pantaði ég síðustu og sjöundu bókina frá síðunni play.com (ódýrast þar), þeir eru með fría heimsendingu og ég hef pantað frá þeim Roswell og Angel þáttaraðir og fleira.
Svo á ég reyndar síðustu bókina í acrobat-skjali (lögleg útgáfa!) en hver nennir nú að lesa bækur í tölvunni hjá sér? Ég get lesið greinar fyrir námið sem ég glósa úr í tölvunni en ekki svona lengra afþreyingarefni, það er ekki gott fyrir augun.
Ok nú vitið þið allt um hvað ég hef verið að gera síðastliðinn mánuð. Bið að heilsa og vona að ég komist norður til að hitta ykkur sem eruð þar, eftir síðasta sálfræðiprófið mitt ever (þar til ég fer í framhaldsnám) sem er 20. ágúst. Svo tekur bara heilakreistandi tölvunarfræði við frá mánaðarmótum ágúst / september ! Ji hvað verður skrýtið að byrja í svoleiðis námi, ekki einu sinni viss um að ég nái að klára önnina, en það kemur í ljós ;-)
Og að lokum. -Nú er víst allt að fara að gjósa, ég legg til að það verði skrifuð bónusbók um Harry Potter ævintýrið, Harry Potter and the volcanic eruption. Já ég veit ég er glötuð.
Allir að brosa (þótt það fari að gjósa ;-o)
kv. Anna Gudd.
Monday, June 25, 2007
Mallorca myndir :-)
ekki búin að vera nógu dugleg að pikka hérna inn. En það er svo sem allt við það sama, vinna og skóli. Ja nema hvað ég skráði mig í frí frá skólanum þar til í ágúst... Smá breyting þar! Ætlaði að klára B.A. ritgerðina í sumar, en svo leist mér bara ekkert á efnisvalið hjá mér svo ég ákvað að fresta henni þar til næsta vor/sumar og ætla að gera hana með Elsu vinkonu í staðinn þá! Með aðeins öðrum efnistökum, segi nánar frá því þegar línurnar skýrast. En allavega eru nú komnar Mallorca-myndir á myndasíðuna mína! Sjá: http://picasaweb.google.com/annagsig/Mallorca2007
Góða skemmtun við yfirferðina og hvað annað sem þið kunnið að taka ykkur fyrir hendur. Heyrumst, kv. Anna Gudd:-)
Thursday, June 14, 2007
Daglegt líf á ný :-)
nú er allt að falla í eðlilegt horf eftir utanlandsferðina, er komin á fullt í vinnunni aftur. Svo gerðist það nú að afi dó á meðan við vorum úti, svo við komum bara beint úr sólinni í kistulagninguna í síðustu viku. Svo var jarðarförin á föstudaginn. Svo þótt við höfum ekki verið hjá honum undir lokin gátum við samt kvatt hann almennilega. Þótt hann hafi verið orðinn þreyttur og minnislítill undir lokin þá veit ég að hann er alveg eins og nýr núna, hinum megin hjá fólkinu sínu. Maður man hann bara heilbrigðan og glaðan, eins og hann var alla tíð. Margret systa og co komu ekki heim fyrr en núna aðfaranótt þriðjudagsins, svo þau misstu af jarðarförinni en presturinn las kveðju frá þeim. Við verðum svo öll dugleg að heimsækja ömmu og vera til staðar fyrir hana.
En annars er það bara vinnan og námið hjá mér. Margret og co. eru að fara í bústað um helgina til að slaka þar á í viku í viðbót, svo þau fá aldeilis gott frí. Ma og pa eru bæði í fríi núna en mamma fer svo að vinna hjá Orkustofnun eftir helgina, nýtt starf og mjög spennandi. Hún ætlar auðvitað að taka strætó í vinnuna eins og ég gerði í skólann í vetur! Maður sparar nú helling á því, fyrst hann gengur héðan frá Akranesi. En þið ættuð að sjá uppbygginguna hérna í bænum, þetta er bara að verða vinsælasta „úthverfið“ í borginni... Við erum komin með Krónuna og Bónus, BT, Subway og nú er Dominos á leiðinni líka! Svo erum við með svaka flott kaffihús, þar sem er líka upplýsingamiðstöð og strætóstoppistöðin fyrir Reykjavíkurstrætó. Allt að gerast! En enn er ekkert gistiheimili hérna, síðan það helsta hætti fyrir ekki löngu. Einhver að kippa því í liðinn!
Jæja meira síðar,
kveðjur úr 15 stigum (segir mælirinn hér...) og alskýjuðu...
Anna Gudd.
Thursday, May 31, 2007
Enn meira fra Mallorca!
nu eru bilaleigudagarnir lidnir hja og Margret systir komin med tengdo og allt lidid til okkar. Ekkert okkar er i sama husinu, en vid rotum a milli, ekki langt ad fara.
Erum buin ad vera i solbadi, og borda saltfloegur og drekka vatn og gos eins og sannir ferdalangar. Engir alvarlegir brunar enntha, og reyndar var eg solarvarnarlaus i dag en thad gerdist nakvamlega ekki neitt, svo eg kem ekki brun heim, varla raud heldur...
En sem sagt vid erum buin ad hafa thad gott allur hopurinn, buin ad fa flestar sortir af vedri, utan vid islenska frostid og snjokomuna, fengid virkilega kalda daga, thrumur og eldingar, hvassvidri (ta matti ekki synda i sjonum) og heita heidskyra solardaga, og heita solarlitla hitamisturdaga! Got it...
En eg er nu farin ad hlakka til ad koma heim, mikil vinna framundan i skola og vinnu.
Ja talandi um skola, eg fekk nu 7 i eina afanganum minum thessa onnina, var himinlifandi med thad, thar sem thetta var ritgerdarprof, bara 2 storar ritgerdir. Thad voru audvitad Freud og Rogers sem um var ad raeda hja mer, nu eru their bestu vinir minir...
Jaeja best ad fara ad tala aftur vid folkid, aetlum svo ad borda saman saltfisk annad kvold, verdur svaka hollt og gott. Pabbi steikti nu bara beikon og egg nu i kvold! Og thad gerdi mikla lukku hja okkur mommu. Verst ad maltidin jok coca cola longun mina til muna og nu er eg ad verda kokisti... hehe... neinei ekki alveg, madur notar nu odyra floskuvatnid lika vel.
Heyrumst!
Anna i solinni :-)
Saturday, May 26, 2007
Meira frá Mallorca !!!
Greinilega enginn áhugi fyrir thessari Mallorca ferd minni... engin comment... iss piss...
En allavega, sma skyrsla.
1. Hotelid okkar er aedislegt, en alveg uti i sveit, utur ollu! Sem eg er samt satt vid. Frabaert fyrir bornin. Ekki mikid af folki enn sem komid er, en eykst stodugt. Godar verslanir, thott fáar séu! Bara fin slokun, og svo á madur pottthétt eftir ad kikja i heitan pott og gufu einhvern seinnipartinn. Lika haegt ad fara i spinning og spa, en held ég sleppi thvi. Agaetis brennsla ad labba um.
2. Fengum eins og ádur sagdi enga sol fyrstu dagana, en hun hefur verid bysna dugleg sidustu daga. Sáum svaka eldingar um daginn, en thad var nogu langt i burtu til ad varla heyrdist í thrumum. Buid ad vera vel heitt, um 30 gradur. Madur er a fullu í vatninu og saltinu.
3. Tokum bilaleigubil sídustu 3 daga, fimmtudag, fostudag og laugardag. Keyrdum um alla eyju, miklir og svadalegir fjallvegir ormjoir i himnahaed... En lika skemmtilegir baeir, og borgin Palma er alveg thokkaleg, madur tharf samt godan tima thar. Var ad spa i ad versla gleraugu, en thad tharf alveg 3 daga i ad gera thau klar, svo eg sleppti tvi, thar sem eg er hinum megin a eyjunni!
Ok meira sídar!
Hafid thad gott!
Wednesday, May 23, 2007
Sma info fra Mallorca !!
Vid erum herna i 25-30 stiga hita og loksins kom sol i dag! Bara buid ad vera mistur og dropar hingad til! Erum mjog anaegd med gistinguna og alla adstodu, og frabaer matur a godu verdi.
Skrifa inn meira sidar.
kv. Anna i solinni.
Wednesday, May 16, 2007
Josh Groban ! Einstök upplifun fyrir líf og sál !
allir að fara á Josh Groban tónleika næst þegar tækifæri er til! Ég fór í gær, og jú þetta var dýrt en ég sé sko ekki eftir peningnum, þótt ekki hafi verið hægt að hrópa húrra fyrir sætunum..
Hann er alveg einstakur, og ótrúlega einlægur í bæði söng og tali. Og bara nokkuð góður húmoristi líka. "I see a lot of women out there... and a few men... You are obviously here because you love the woman sitting next to you very much..." Er þetta ekki snilld...
En það er ótrúlegt að fylgjast með honum syngjandi og spilandi þarna eins og ekkert sé auðveldara. Hann tók mikið af nýjum lögum, og svo auðvitað það frægasta You Raise me up, sem maður hefur nú heyrt alltof oft, en var auðvitað frábært að heyra það svona live. Reyndar heyrðist nú ekki mikið í Gospelkór Reykjavíkur, en þau voru samt landinu til sóma. Og svo sinfoníuhljómsveit Reykjavíkur, sem spilaði með allan tímann, þau voru alveg frábær. Fiðlustelpan Lucia og gítarkarlinn (sem ég náði ekki nafninu á) sem fylgja Groban um heiminn, eru þvílíkir snillingar. Og auðvitað líka píanistinn, bassaleikarinn og trommarinn, allir góðir. Og svo er hann náttúrulega undrabarn sjálfur hann Groban, spilar á píanó, trommur og áreiðanlega eitthvað meira og svo syngur hann svona óaðfinnanlega.
Ég mun aldrei gleyma hversu þægilegt var að sitja á þessum tónleikum og lifa sig inn í músíkina. Við mamma sátum þarna saman og erum held ég enn í tónlistarvímu eftir þetta. Bara eins og góð slökun í sannleika sagt. Var allt svo óþvingað og fyrirhafnarlaust, bara eins og ekkert gæti mögulega klikkað hjá Groban og félögum.
Hljóðið var líka mjög flott, ljósin og zoomið á veggskjánum, svo höllin á alveg skilið hrós fyrir það, en seint mun ég hrósa þeim fyrir sætin... En litlu skiptir það þegar maður er að hlusta á svona ljúfa tóna. Og krafturinn í honum, undirspilið var kannski stundum fullhávært, en hann yfirgnæfði hana alltaf, jafnvel í mýkstu tónunum. Sem sagt einstök upplifun, sem ég mæli með fyrir alla :-)
Jæja ætla að snúa mér aftur að vinnunni og vona að tónlistarvíman dragi ekki úr afköstum mínum... Ouuuuuu remember when it rained...
Heyrumst!
Sunday, May 13, 2007
Eurovision! Til hamingju Serbía :-)
mikið er ég nú glöð yfir úrslitunum í Eurovision, eitt af uppáhaldslögunum mínum vann. Og það voru þrjú önnur lönd í topp 10 sem voru inni á mínum topplista; Ungverjaland, Rússland og Moldavía. Ég var engan veginn að skilja hvað Armenía var að gera þarna á toppnum, og ekki Grikkland heldur... En það er nú kannski bara af því ég er frá Vestur-Evrópu... Hehe... En í alvöru talað, nördinn ég fyllti inn á Evrópukort, úrslit þessarar 'keppni'. Það var nú reyndar sennilega aðeins meira varið í Austur-Evrópu lögin en þau frá Vestur-Evrópu, en pælið samt í því að efstu 15 sætin af 24 keppenum í úrslitunum, voru frá Austur-Evrópu... Held það mætti alveg skipta þessu á næsta ári, þetta er ekki eintómir nágrannadómar, en greinilega nógu mikið verið að taka nágrannana fram yfir gæði laganna (og Íslendingar eru nú lítið saklausari í því). Auk þess sem keppnin verður miklu skemmtilegri ef atkvæðagreiðslunni væri skipt í undanúrslitum, þannig að Vestur-Evrópa veldi uppáhaldslögin sín frá Vestur-Evrópu og Austur-Evrópa veldi uppáhaldslögin sín frá Austur-Evrópu. -Og svo væri haldin sameiginleg úrslitakeppni, þar sem væru jafnmörg lög frá Austur- og Vestur-Evrópu, og þar væru báðir hlutarnir að kjósa bara (vonandi) það lag sem þeim fyndist best, óháð staðsetningu! Svoldið þvælið! En skiljú? Þetta fyndist mér sniðugt.
En jæja best að reyna að snúa sér að veruleikanum á ný! Stjórnmálin maður... Það er nú lítill veruleiki þar, ég vildi stjórnarskipti... En langar bara ekkert að tala um það meir! Bið að heilsa, munið að kíkja af og til á myndasíðuna mína, reyni að bæta inn þar reglulega.
kveðja þar til næst,
verið góð :-)
Monday, April 30, 2007
Eurovision !
smá eurovision öppdeit hér (heh sá sem giskar rétt á hvað öppdeit þýðir fær verðlaun...)!
Nú er ég búin að hlusta á öll lögin oftar en einu sinni (þ.e. þau sem þola endurtekna hlustun!).
Og niðurstaðan er breytt frá því síðast og sú að uppúr standa 12 lög (gæti auðvitað breyst ennfrekar...) sem koma frá eftirfarandi löndum (í stafrófsröð!), feitletruð þau sem ég held mest upp á:
Austurríki
Bosnía
Finnland
Ísland
Makedónía
Malta
Moldavía
Noregur
Rússland
Serbía
Tékkland
Ungverjaland
Ok þar hafiði það, og þar að auki, eftirfarandi lönd hefðu getað komist á topplistann ef flutningur og fleira hefði verið betri:
Búlgaría,
Eistland,
Georgía,
Lettland,
Slóvenía,
Sviss (kommon, bara burt með textann, lagið er fínt).
Og þar hafið þið það líka!
Best að halda áfram með prófaundirbúninginn.
Kveðja þar til næst,
Anna Gudd.
Sunday, April 15, 2007
Tölvur...
Og talandi um tölvur og TÍMA. Hvað er með það að tíminn hverfi þegar maður er í tölvu?? Ég vildi að verkefnin mín væru ekki svona tölvubundin (og ennfremur að ég skrifaði betur með hönd og penna...) svo mér fyndist dagurinn nýtast betur! En jæja best að reyna að gera eitthvað af viti… Hafið það lúxus gott og ekki brak í baki eða allt á hvolfi! Syngið með lóunni og kveðið burt snjóinn og kuldann!
Og svo er það bara að læra fyrir próf og halda áfram með B.A. stórvirkið...
Kveðjur þar til næst :-)
Vinna…
En talandi um tölvur, er maður orðinn of háður netinu í dag? Því ég átti að hafa nettengda tölvu í vinnunni, en það var ekki búið að setja það upp í henni og þurfti einhvern tæknikall í það (kall já, hvar eru tæknikonurnar... ég er kannski ein af þeim en gat ekki reddað þessu!), og í staðinn fékk ég bara að nota notandanafn og lykilorð yfirmannsins til að komast inn á tölvuna... Svona er að vinna fyrir konur! Ætli yfirmaðurinn hefði leyft mér þetta ef hann væri karl...? Ekki svo viss um það... En maður veit jú aldrei fyrr en reynir á! Annars var þetta ljúft hjá mér á meðan ég var í vinnunni, því ég vaknaði bara, vann, mætti stutt í skólann og kannski borðaði einhver korn inn á milli ef ég mátti vera að... og fór svo heim að reyna að læra en í raun var þá dagurinn búinn...
Friday, April 13, 2007
Komin aftur!
Heyrumst fljótt!
Sunday, March 18, 2007
Hæ aftur... já réttilega kalla ég þetta bloggtilraunir...
Já og svo er maður búinn að hlusta á ÖLL, já ÖLL eurovision lögin í ár og dæma þau eftir fyrstu hlustun. Viljið þið vita meir? Ég ætla allavega að taka fram að 10 bestu lögin (í starfófsröð!) finnst mér vera frá:
Austurríki
Eistlandi
Finnlandi
Íslandi
Kýpur
Makedóníu
Möltu
Moldavíu
Rússlandi
Serbíu
Þar hafið þið það!
Og svona while I'm at it, skammar-eurovision-verðlaunin í ár frá mér fara til eftirfarandi landa:
Belgíu,
Bretlands,
Rúmeníu,
Úkraínu.
En jæja ég óska ykkur góðrar helgar og viku ef ég skyldi aftur ekki standa mig í umræðunni.
Verið góð við hvert annað... :-)
Thursday, March 1, 2007
Ég um mann frá manni til manns?
vá hvað tíminn líður hratt. Og maður gerir lítið af viti... Þykist vera að læra, en er í raun bara að horfa á Heroes og hlusta á Eurovision lögin erlendis frá í ár... (omg who's the nerd...) Mörg góð lög, en Ísland sker sig úr, svo við eigum kannski séns (það segjum við og vonum á hverju ári...). Hægt að skoða þau sem eru komin á YouTube (bara skrifa Eurovision 2007 í leitina!).
Er svo að afla mér upplýsinga um tolla og sendingarkostnað... og reyna að vera svaka viðskiptafræðileg... [í dragtinni með nett gleraugu á nefinu híhí] af því mig langar svo að kynna Ísland fyrir frábæru bolunum frá The Mountain. Allir sem vilja bol sendi mér línu... :-D Á svo bókað námskeið fyrir stofnendur fyrirtækja í lok mánaðarins... Fingers crossed...
En já svo á ég eins og áður sagði að vera að læra, því ég er að útskrifast í október. Er bara í einum áfanga núna sem er hrikalega strembinn og svo bara blessuðu lokaverkefninu... og ekki gengur það nú of vel... Plús eitt próf í sumar. Svo maður á ekki eftir að vinna mikið í sumar, bara einhver hlutastörf, sem vonandi fást. Verst að maður skuli ekki hafa haft tíma til að klára einhverjar af þessum ótalmörgu sögum sem eru í skrifum, og gefa þær út í bók eða jafnvel myndasögu... Og vera orðinn ríkur á þessu... Og nú er maður meira að segja hættur að tala í fyrstu persónu... En þetta er samt ennþá ég, held ég...
Allavega, best að reyna að lesa eitthvað og koma sér í háttinn. Meira hvað dagarnir fjúka... Sí jú! Bless þangað til næst ljúflingar :-)
Wednesday, February 21, 2007
Myndasíðan komin!
Gleðilegan sprengidag ;-)
Þangað til, vonandi átuð þið mikið í gær og enn meira í dag, og flippið rækilega út á morgun :-D
Thursday, February 15, 2007
Jæja maður ætlar að reyna...
P.S. Ég veit alveg að við búum í Atlantshafinu, svona ef einhver hafði áhyggjur...


